generic online
Uppskeruhátið   Prenta  Senda 

Miðvikudaginn 15.september næstkomandi kl. 17:00-18:00 verður haldin uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Hátíðin verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Markmiðið með hátíðinni er að gefa góðgerðafélögunum, hlaupurum og skipuleggjendum hlaupsins færi á að hittast og fagna góðum árangri saman. Farið verður yfir tölfræði áheitasöfnunarinnar, boðið uppá lifandi tónlist og frískandi veitingar. Þá fá góðgerðafélögin afhendar upplýsingar um áheit og uppgjör.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

 


« Til baka
Hafa samband Um Parkinsonveiki Fréttir Minningarkort
| PSÍ-Parkinsonssamtökin á Íslandi | kt.461289-1779 | Hátúni 10b, 9.hæð. | 105 Reykjavík | parkinson@parkinson.is | 552-4440 | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun