|
Laugardaginn 23. júní klárar Snorri Már hringferð sína um landið á hjóli, sem hann hefur kallað Skemmtferðina . Ferðin er farin til að minna okkur öll á mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi. Síðasta dagleiðin hans er frá Selfossi til Hveragerðis og frá Hveragerðii að Prentsmiðjunni Odda , Höfðabakka í Reykjavík. Tímasetningar Skemmtiferðarinnar: kl:9:00 Frá Selfossi => Hveragerði 9:40 kl:12:00 Frá Hveragerði kl:12:40 Kambabrún (hjólakappar bætast í hópinn) kl:13:30 Skíðaskálinn í Hveradölum (hjólakappar bætast í hópinn) kl:14:00 Litla kaffistofan (hjólakappar bætast í hópinn) kl:14:45 Rauðavatn (hjólakappar bætast í hópinn) kl:15:00 Hjólahópurinn kemur að Prentsmiðjunni Odda, Höfðabakka 3 Það væri gaman að sjá sem flesta taka á móti Snorra Má þegar hann lokar hringnum í Skemmtiferðinni. Það voru margir sem fylgdu honum úr hlaði eins og sjá má hér og stefnir í að ekki verði færri sem hjóla með honum einvern part af síðustu dagleiðinni.
|