Minnum á vorferð PSÍ laugardaginn 25.maí nk. Þátttaka tilkynnist til Hrannar fyrir 22. maí í síma 862 5201 Heildarverð er kr. 6-7000, (fer eftir fjölda þátttakenda.)
Lagt af stað frá Hátúni 9:30 KL. 10:30 Stutt stopp í Borgarnesi. KL. 11:00 Haldið áleiðis í Langholt Staðarsveit og komið við hjá Gerðubergi (stuðlabergshamrar). Um hádegið verður súpa og brauð í Langholti, stoppað þar og skoðað og skrafað í ca 2 klst. KL.14:30 Haldið til baka í Borgarnes, stutt stopp. Ekið um Geldingadraga, Svínadal og Ferstikluháls að Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, ferðaþjónusta. Þar er boðið upp á kaffi og meðlæti og sögustund um nágrennið undir hljóðfæraleik heimamanna. Kl. 18.00 Lagt af stað heim um Hvalfjörðinn. Ökumaður er Guðbjörn, leiðsögumenn eru Guðfinna, Brandur og Tryggvi.
Lyfjakostnaður Parkinsonsjúklinga
mánudagur, 6. maí
Þar sem margir Parkinson sjúklingar eru á mjög dýrum lyfjum þá eru þeir margir að fara upp í þetta svokallaða „þak“ skírteini.
Ef einstaklingur er á hærra gjaldi
Ef einstaklingur greiðir 69.415 kr. innan 12 mánaða tímabilsins (5.785kr. að meðaltali á mánuði) getur læknir sótt um aðSÍ greiði lyf að fullu (100%) það sem eftir er af tímabilinu að uppfylltum skilyrðum vinnureglna SÍ. Einungis lyf sem SÍ taka þátt í að greiða falla hér undir. Þegar einstaklingur er kominn upp í þessa hámarksupphæð þá er heildarlyfjakostnaður kominn upp í 556.400 kr
Ef einstaklingur er á lægra gjaldi:
Ef einstaklingur greiðir 46.277 kr. innan 12 mánaða tímabilsins (3.856kr. að meðaltali á mánuði) getur læknir sótt um að SÍ greiði lyf að fullu (100%) það sem eftir er af tímabilinu að uppfylltum skilyrðum vinnureglna SÍ. Einungis lyf sem SÍ taka þátt í að greiða falla hér undir.Þegar einstaklingur er kominn upp í þessa hámarksupphæð þá er heildarlyfjakostnaður kominn upp í 370.927 kr
Það er hægt að sækja um þessi skírteini fyrirfram ef vitað er að kostnaður vegna lyfjakaupa ársins er skv. ofangreindum vinnureglum SÍ.
leiðrétt lægra þak á lyfjakostnaði
föstudagur, 3. maí
Velferðarráðherra hefur leiðrétt lægra þak á lyfjakostnaði í nýja lyfjakerfinu þeas hámarkskostnað sem getur myndað rétt til 100% þátttöku SÍ fyrir öryrkja, aldraða, börn og ungmenni 18-21 árs. Þrepið hefur verið lækkað úr 48.150 kr. niður í 46.277 kr.
Rökstuðningur frá ráðuneytinu:
Samkvæmt 2. gr. laga nr. 45/2012, er kveður á um nýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja, er tekið fram að gjald fyrir lyf skuli vera lægra hjá öldruðum, öryrkjum, börnum og ungmennum á aldrinum 18–21 árs og að það skuli ekki vera hærra en 2/3 af fjárhæð þrepa annarra sjúkratryggðra.
Í reglugerð nr. 313/2013 miðast lægra þrepið við kr. 48.150 og hærra þrepið við kr. 69.416.
Samkvæmt þessu er lægra þrepið 69,4% af efra þrepinu en ætti samkvæmt lögunum ekki að vera hærra en 67% af því.
Meðfylgjandi er skannað eintak breytingar á reglugerð nr. 313/2013 sem ráðherra hefur undirritað.
Tölunni hefur verið breytt á vefsíðu SÍ en er auðvitað röng í prentuðu útgáfuefni.
Fyrirhugaður fræðsludagur á vegum parkinsonteymis Reykjalundar fellur niður vegna dræmrar þátttöku.
Fimmtudaginn 18. apríl 2013, kl 13 verður fræðsludagur á vegum parkinsonsteymis Reykjalundar fyrir fólk sem nýlega hefur greinst með parkinsonsveiki og aðstandendur þess. Markmið fræðsludagsins er að upplýsa þátttakendur um sjúkdóminn og meðferðarmöguleika. Áhersla er lögð á virkni einstaklingsins, ábyrgð á eigin heilsu og aðlögun að lífi með langvinnan sjúkdóm.
Dagskrá auglýst síðar á heimasíðu PSÍ og Reykjalundar
Í teyminu eru: Læknir, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, félagsráðgjafi, talmeinafræðingur og sjúkraþjálfari.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 585-2107, hjá Hafdísi Gunnbjörnsdóttur, hjúkrunarfræðingi. Aðgangur er ókeypis.
Með fyrirvara um næga þátttöku
Nýr Pési kominn á netið
þriðjudagur, 16. apr
Nýr Pési er kominn á netið og stútfullur af fréttum og aldrei verið stærri. Dagskrá næsta laugardagsfundar og dagskrá vorferðar er meðal efnis.
Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna kaupa á lyfjum tekur gildi 4. maí 2013. Það er ástæða fyrir alla sem nota lyf að staðaldri að kynna sér þessa breytingu, en það er hægt að gera á vef Sjúkratrygginga Íslands . Þar má finna útskýringar á nýja kerfinu en einnig reikna væntanlegan lyfjakostnað i sérstakri Lyfjareiknivél.